Skoða bók

Aron : Sagan mín

Aron Einar Gunnarsson   Einar Lövdahl  

Hjálmar Hjálmarsson  

10:59 klst.  

2018  

Hvernig fór ofvirkur strákur frá Akureyri að því að leiða íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu út á völl í lokakeppni EM og HM? Aron Einar Gunnarsson opnar sig upp á gátt í þessari mögnuðu bók og lesandinn fylgir honum frá fyrstu skrefum yfir á stærsta svið heims þar sem hann glímdi við menn á borð við Ronaldo, Griezmann, Modric og Messi. Sigrarnir eru margir en Aron ræðir einnig opinskátt um þá ákvörðun að fórna því að vera viðstaddur fæðingu sonar síns, að verða skúrkur eftir ummæli í fréttaviðtali og líkamlegu og andlegu þrekraunirnar sem fylgja álaginu í boltanum. Einstök innsýn í líf atvinnumannsins, ævintýri landsliðsins sem öll þjóðin fylgdist með og það sem gerist bak við tjöldin þegar myndavélarnar eru fjarri.  

Aron Einar Gunnarsson 1989- Fótbolti Knattspyrna Sjálfsævisögur Ævisögur Ísland Íþróttamenn Íþróttir