Skoða bók
Skúli fógeti
09:18 klst.
2018
Skúli Magnússon, faðir Reykjavíkur, varð fyrstur Íslendinga fógeti landsmanna. Með það afl í farteskinu tókst honum að flytja vísi iðnbyltingarinnar til Íslands með stofnun Innréttinganna, þar sem hann var helsti drifkrafturinn. En Skúli átti sér margar hliðar: hann var búðarstrákur, lífsglaður Hafnarstúdent, kornungur framagjarn embættismaður, kvennagull og svallari, sýslumaður Skagfirðinga og baráttumaður gegn valdi einokunarkaupmanna, áhrifamestur Íslendinga um hálfrar aldar skeið og í nánu vinfengi við valdamenn í Kaupmannahöfn - og lífsþreytt gamalmenni sem galt áður en lauk landskuldina af Viðey til fulls og endaði ævina þar í skjóli andstæðinga sinna. Allar þessar hliðar Skúla sýnir Þórunn Jarla Valdimarsdóttir hér á sinn einstaka hátt og lýsir um leið samferðafólki hans og samtíð af innlifun.
18. öld Embættismenn Reykjavík Skúli Magnússon 1711-1794 Sýslumenn Viðey Ævisögur Ísland Íslandssaga