Skoða bók

Hornauga

Ásdís Halla Bragadóttir  

Margrét Kaaber  

10:20 klst.  

2018  

Í Hornauga segir Ásdís Halla Bragadóttir söguna af því sem gerðist þegar hún á fullorðinsárum stóð loks andspænis nýfundnum genum sínum eftir að hafa komist að því hver blóðfaðir hennar er. Án þess að draga nokkuð undan lýsir hún því hvernig hún missti stjórn á rás atburðanna með ófyrirséðum afleiðingum. Í kjölfarið einsetti hún sér að kynnast föðurfólki sínu betur og heillaðist fljótlega af sögu formæðra sinna. Hún leitaði fanga í skjalasöfnum heima og erlendis, gróf upp áður óbirt einkabréf og umdeildar játningar. Í þessum stórmerkilegu konum fann hún hinn helminginn af sjálfri sér, í konum sem höfðu ýmsu áorkað en jafnframt misstigið sig illa og verið litnar hornauga. Í Hornauga birtist okkur mögnuð ættarsaga, sögð af mikilli einlægni. Bók sem lætur engan ósnortinn.  

Fjölskyldusögur Fjölskyldutengsl Konur Sjálfsævisögur Ásdís Halla Bragadóttir 1968- Ættarsögur Ættfræði Ævisögur Ísland