Skoða bók
Óstýriláta mamma mín ...og ég
06:50 klst.
2019
Ásta Bjarnadóttir fór alla tíð sínar eigin leiðir. Hún var níunda í röð fimmtán systkina, fædd á Húsavík 1922. Átján ára gömul eignaðist hún barn sem hún fól foreldrum sínum en flutti sjálf til Bandaríkjanna. Þar átti hún í sambandi við 30 árum eldri ofursta sem hún hafði kynnst í "ástandinu" í Reykjavík. Seinna giftist hún íslenskum manni og eignaðist með honum fjórar dætur en varð ung ekkja og gekk brösuglega að takast á við afleiðingar þess og ábyrgðina á ungum börnum. Hér leyfir Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og dóttir Ástu, minningunum að streyma fram í leit að skilningi á mömmu sinni; kryfur ástæður þess að svo glæsileg og hæfileikarík manneskja glímdi alla tíð við vanmetakennd og höfnunartilfinningu. Hvers vegna kom hún sér iðulega upp á kant við þá sem þótti vænt um hana? Og hvað leiddi til þess að litríka, erfiða og heillandi mamma hennar boðaði með fáheyrðum hætti dauðann á sinn fund?
Fjölskyldutengsl Hernámið Konur Mæðgur Reykjavík Seinni heimsstyrjöld Sæunn Kjartansdóttir (1956) Ásta Bjarnadóttir 1922-2007 Ástandið Ævisögur