Skoða bók

Brosað gegnum tárin

Bryndís Schram  

Bryndís Schram  

10:33 klst.  

2020  

Brosað gegnum tárin er bók um ástina og hamingjuna og um sorgina og harmleikinn. Ævisaga heitra tilfinninga og dramatískra viðburða. Bók sem enginn leggur frá sér - ósnortinn. Bryndís var ung að árum þjóðkunn og frá æskuárum hefur hún verið í órofa bandalagi við mesta ástríðupólitíkus landsins. Saman hafa þau unnið stóra sigra á innlendum og alþjóðlegum vettvangi. Samt hefur hún sjaldan setið á friðarstóli. Hvað eftir annað var hún hrakin úr starfi út af pólitík. Óvægin fjölmiðlagagnrýni - eða voru það pólitískar ofsóknir? - rötuðu jafnvel inn í réttarsali. Þegar "hið friðsæla ævikvöld" nálgaðist, skók fjölþjóðleg forræðisdeila um ömmubarn hennar líf fjölskyldunnar árum saman. Stóra sorgin í lífi hennar var að missa dóttur sína í blóma lífs. Og fjölskylduharmleikur - sárari en orð fá lýst - varpar dimmum skugga á ævikvöldið. Brosað gegnum tárin heldur áfram þar sem hin vinsæla bók Bryndísar Í sól og skugga (2008) endaði. Hún segir söguna alla, þar sem höfundur horfist í augu jafnt við hamingjuna sem harmleikinn.  

Bryndís Schram, 1938 Endurminningar Konur Sjálfsævisögur Uppgjör Ævisögur