Skoða bók

Dauði skógar

Jónas Reynir Gunnarsson  

Stefán Hallur Stefánsson  

04:00 klst.  

2021  

Ég ímynda mér að ég þjóti á mótorhjóli í gegnum nóttina. Að ég keyri út úr bænum og láti mig hverfa inn í myrkrið. Reyndar er ég svo gott sem horfinn. Þess vegna fór ég til Spánar, til að hverfa. Það hefur rignt linnulaust í marga daga þegar skógurinn rennur niður hlíðina og setur allt af stað í lífi landeigandans og fjölskylduföðurins Magnúsar. Litlu seinna koma sprengjurnar í ljós. Dauði skógar er launfyndin og margræð saga um það þegar hversdagurinn fer á hvolf og dauðinn ber að dyrum. Fyrri skáldsögur Jónasar Reynis Gunnarssonar, Millilending og Krossfiskar, vöktu mikla athygli og var sú fyrri tilnefnd til Menningarverðlauna DV. Fyrir ljóðabókina Stór olíuskip hlaut hann Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og Maístjörnuna fyrir Þvottadag.  

Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir