Skoða bók

Draumar og veruleiki

Kjartan Ólafsson  

Sigurður Skúlason  

Draumar og veruleiki  

21:55 klst.  

2021  

Vinstriflokkarnir settu mikinn svip á íslensk stjórnmál síðustu aldar. Hreyfing kommúnista fór að láta að sér kveða í upphafi þriðja áratugarins og allar götur síðan áttu róttæk sjónarmið öfluga talsmenn. Í þessu mikla ritverki Kjartans Ólafssonar er fjallað um lykilpersónur, átök og atburði í sögu Kommúnistaflokks Íslands og Sameiningarflokks alþýðu - Sósíalistaflokksins. Enginn núlifandi Íslendingur hefur betri innsýn í þessa sögu en Kjartan, en hann starfaði um árabil innan vinstrihreyfingarinnar og þekkti persónulega flesta þeirra sem hér koma við sögu. Bókina byggir hann á margvíslegum gögnum og leitar meðal annars í nýframkomnar heimildir úr íslenskum, rússneskum og þýskum skjalasöfnum. Kjartan Ólafsson skipulagði fyrstu Keflavíkurgönguna árið 1960 og var einn stofnenda Samtaka hernámsandstæðinga sama ár. Hann starfaði í innsta hring Sósíalistaflokksins og Alþýðubandalagsins á sjöunda, áttunda og níunda áratugnum, sat um tíma á Alþingi og var um árabil ritstjóri Þjóðviljans.  

Alþýðubandalagið (1956-2000) Brynjólfur Bjarnason 1898-1989 Einar Olgeirsson 1902-1993 Eðvarð Sigurðsson, 1910-1983 Guðmundur Hjartarson, 1914-2007 Guðmundur J. Guðmundsson, 1927 - 1997 Ingi R. Helgason, 1924-2000 Jón Rafnsson, 1899-1980 Kommúnistaflokkur Íslands Kristinn E. Andrésson 1901-1973 Lúðvík Jósepsson 1914-1994 Magnús Kjartansson 1919-1981 Saga Stjórnmál Stjórnmálaflokkar Sósíalistaflokkurinn (1938-1968) Ísland