Skoða bók

Gegnum vötn, gegnum eld

Unge, Christian  

Hilmar Hilmarsson  

Björk Þorgrímsdóttir  

Tekla  

12:26 klst.  

2020  

Tekla er ungur læknir á bráðadeild Nóbelsjúkrahússins í Stokkhólmi. Hún er eldklár og tekst af öryggi á við hverja áskorun í starfinu. En Tekla á sér leyndarmál. Fjölskyldusaga hennar er eitt flakandi sár og sársaukann þarf hún að deyfa dag hvern. Og hún býr yfir dýrmætum og hættulegum eiginleika: hún gleymir engu sem hún sér. Þegar stórbruni verður í háhýsi í borginni bjargar Tekla lífi manns sem enginn veit hver er. Grunsemdir vakna um hryðjuverk og lögreglan vaktar sjúklinginn sem liggur rænulaus og skaðbrunninn á spítalanum. Er hann sprengivargur eða saklaust fórnarlamb - jafnvel maður sem Tekla þekkir mætavel og myndi fórna öllu fyrir? Gegnum vötn, gegnum eld er geysivel fléttuð spennusaga um grimma undirheima, spillta yfirstétt og baráttu um auð og völd - en líka um böndin sem binda fólk saman til góðs og ills. Höfundurinn, Christian Unge, er yfirlæknir í Stokkhólmi og hefur starfað fyrir Lækna án landamæra. Hann nýtir reynslu sína og þekkingu vel í bókunum um Teklu.  

Glæpasögur Kvikmyndaðar bækur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Sænskar bókmenntir Þýðingar úr sænsku