Skoða bók

Út að drepa túrista

Þórarinn Leifsson  

Karl Emil Gunnarsson  

08:00 klst.  

2021  

Út að drepa túrista er egghvöss og ísmeygilega fyndin glæpasaga mitt úr brjálæði massatúrismans. Hér gefst fágætt tækifæri til að gægjast bak við tjöldin í furðulegustu atvinnugrein landsins korteri áður en kórónaveiran lamar alla heimsbyggðina. Saga sem kemur sífellt á óvart. Leiðsögumaðurinn Kalman er þreyttur. Hring eftir hring og ár eftir ár hefur hann mátt sinna kenjum fólks frá öllum heimshornum, svara furðulegum spurningum og bregðast við óvæntum uppákomum. En þessi síðasta Suðurstrandarferð ætlar allt að trompa. Ekki nóg með að einn farþeginn finnist myrtur í upphafi ferðar og morðinginn leynist um borð í rútunni heldur sveimar hættuleg veira um, veðurspáin er viðbjóður og sá sem lögreglan sendir til að leysa málið er í hæsta máta vafasamur. Þórarinn Leifsson er með meirapróf í að eiga við ferðamenn. Áður hefur hann skrifað bækur bæði fyrir börn og fullorðna sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála, hlotið verðlaun og fengið frábæra dóma. Þetta er fyrsta glæpasaga hans.  

Ferðamennska Glæpasögur Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir