Skoða bók

Með grjót í vösunum

Sveinn Torfi Þórólfsson  

Vilhjálmur E. Eggertsson  

12:48 klst.  

2021  

Sveinn Torfi Þórólfsson (1945-2016) ólst upp á Skagaströnd til tíu ára aldurs en fluttist þá til Grindavíkur með fjölskyldu sinni. Lífsbaráttan var hörð og oft var mikið lagt á hans ungu herðar. Hann vann í fiski, fór í sveit og stundaði sjómennsku frá barnsaldri. Með grjót í vösunum geymir minningar um horfinn tíma og svipmyndir af eftirminnilegu fólki. Þetta er mikilsverð og bráðskemmtileg heimild um íslenskan veruleika um miðja síðustu öld. Sveinn braust af eigin rammleik til mennta. Hann var fyrst á Laugarvatni en síðan í Háskólum á Íslandi og í Noregi þar sem hann settist að og starfaði sem verkfræðingur og prófessor. Hér segir Sveinn Torfi frá æskuárunum á Skagaströnd þar sem hugmyndaflugið fékk að njóta sín í fjölbreyttum leikjum og síðan ljúfri sveitadvöl á Höskuldsstöðum - en einnig harðneskjulegum unglingsárum.  

20. öld Bernska Endurminningar Grindavík Sjálfsævisögur Skagaströnd Sveinn Torfi Þórólfsson 1945-2016 Verkfræðingar Æskuminningar Ævisögur