Skoða bók
miSter einSam
06:39 klst.
2021
Það getur verið erfitt og einmanalegt að vera sonur Hákarlsins, eins umdeildasta manns landsins. Sammi er kominn í stutt vetrarfrí til Íslands og fer ásamt vinum sínum Ingó og Korra í Örenda, afskekktan glæsibústað fjölskyldunnar. Eyrún, systir Korra, kemur með og svo slæst Sigrún í hópinn - stelpan sem Sammi hefur ekki getað losnað við úr huga sér síðan hann flúði af landi brott. Þegar eitt þeirra hverfur sporlaust út í vetrarmyrkrið og undarleg atvik skjóta hinum skelk í bringu rennur það smám saman upp fyrir Samma að flóttinn hefur ekki bjargað honum frá vandamálum fortíðarinnar ... Nýjasta bók Ragnheiðar Eyjólfsdóttur, miSter einSam, er hörkuspennandi ungmennasaga sem kemur sífellt á óvart. Ragnheiður hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir bækur sínar á undanförnum árum. Rotturnar, sem kom út 2018, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Hrollvekjur (sögur) Spennusögur Ungmennabækur Ungmennabókmenntir (skáldrit) Íslenskar bókmenntir