Skoða bók
Allt eða ekkert
1
13:58 klst.
2022
Lexia Vikander er textahöfundur á auglýsingastofu. Hún er ekki ánægð í vinnunni. Henni finnst hún heldur ekki eiga heima meðal tággrannra kvenna í auglýsingageiranum sem telja kalóríur í hvert mál. Nýr eigandi hefur tekið við fyrirtækinu og það er altalað að mörgum verði sagt upp. Til að hressa sig við bregður Lexia sér á bar og hellir í sig alltof mörgum bleikum drykkjum. Allt í einu sest við hliðina á henni myndarlegasti maður sem hún hefur séð! Adam Nylund er maður sem hefur unnið sig upp af eigin rammleik og þykir harður í horn að taka. Hann vill helst einbeita sér að vinnunni en konan við hliðina á honum á barnum vekur áhuga hans. Að minnsta kosti þangað til hún snýr sér að honum drukkin, kyssir hann og kastar upp yfir skóna hans. Á mánudagsmorgun hittast þau aftur, Lexia og nýi yfirmaður hennar - Adam. Bráðfjörug og spennandi ástarsaga um líf nútímakvenna, heitar ástríður og fáránlegar líkamsímyndir. Sænska ástarsögudrottningin og femínistinn Simona Ahrnstedt sló rækilega í gegn með Teflt á tvær hættur-seríunni (Aðeins ein nótt, Aðeins eitt leyndarmál og Aðeins ein áhætta). Allt eða ekkert er fyrsta bókin í nýrri seríu sem kallast: Seiðmagn andstæðnanna.
Erótík Skáldsögur Sænskar bókmenntir Ástarsögur Þýðingar úr sænsku