Skoða bók
Líkaminn geymir allt
Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir Arnþór Jónsson
23:32 klst.
2023
Í þessari þekktu bók sem nefnd hefur verið "Áfallabiblían" rekur einn helsti sérfræðingur heims í áfallafræðum fjölda staðreynda um afleiðingar áfalla og kynnir leiðir til bata; aðferðir sem reynst hafa skilvirkar til að lækna huga, heila og líkama. Áföll sem fólk verður fyrir á lífsleiðinni geta haft mikil og varanleg áhrif á þolendur, fjölskyldur þeirra og jafnvel næstu kynslóðir. Rannsóknir sýna að áföll bitna ekki aðeins á andlegri líðan, tilfinningalífi, skynjun og félagsfærni, heldur geta haft víðtækar heilsufarsafleiðingar og hafa því um leið áhrif á samfélagið allt. Efnið snertir marga og bókin hefur vakið mikla umræðu um geðheilsu. Hún hefur setið á metsölulistum erlendis árum saman en höfundurinn, dr. Bessel van der Kolk, er geðlæknir í Boston með áratuga reynslu og yfirgripsmikla þekkingu á áfallameðferð.
Bataferli Batasögur Meðferð Samtalsþerapía Sjálfsrækt Sjálfsskaði Sálfræðimeðferð Sálræn áföll Áfallastreita Áfállaröskun Áföll