Skoða bók

Guðir og annað fólk

Steingrímur Dúi Másson  

Hannes Óli Ágústsson  

02:27 klst.  

2026  

Grímur er í Reykjavík. Fyrir ofan dökka hlið Tunglsins svífur geimskip Eggfólksins undir stjórn Tromp IV, sem hyggst útrýma mannkyninu. Á jörðu niðri er Grímur, guð í gervi manns, og bíður þess að verða kallaður fyrir ÖlfaOmega, almáttuga veru sem talar í óræðum kaótískum skipunum, ósnertanleg og ósýnileg flestum. Hún skipar honum að hafa upp á Loka í Róm og finna Barnið áður en Eggfólkið ræðst til atlögu. Í þessu verkefni hans er Aþena við hlið hans sem klettur sem treystir aðeins skynseminni, og Búda sem dregst inn í valdaspilið, gyðjan sem geislar af orkustöðvunum sjö og fer óendanlega í taugarnar á Ölfu Ómegu. Þau takast á við að fylgja óræðum skipunum Alfa Ómegu, berjast við hinn sjálfhverfa en miskunnarlausaTromp, og síðast en ekki síst, takast á við eigin trú í heimi þar sem enginn er alveg guð og enginn er alveg manneskja. Súrrealísk goðsagnakennd saga um sköpun, baráttu á milli góðs og ills, ástar og þess ótrúlega hversdagslega. Guðir og annað fólk er þriðja útgefna bók Steingríms Mássonar og jafnframt hans fyrsta skáldsaga.  

Skáldsögur Vísindaskáldskapur Íslenskar bókmenntir