Skoða bók
Sálfræði peninganna
Georg Lúðvíksson Kristrún Tinna Gunnarsdóttir
07:46 klst.
2025
Þetta er ekki bók um hvernig á að ná árangri í fjárfestingum og ¿sigra markaðinn¿ eða verða ríkur á einni nóttu. Þetta er bók um hegðun, viðhorf og sjálfsþekkingu ¿ og þar af leiðandi um hvernig við getum tekið betri og meðvitaðri ákvarðanir. Farsæld í fjármálum fer ekki endilega eftir því hvað þú kannt. Hún fer eftir því hvernig þú hegðar þér. Og það er erfitt að kenna fólki hegðun, jafnvel eldkláru fólki. Kennsla um peninga fjallar nær alltaf um fjármálin á rökréttan og stærðfræðilegan hátt þar sem alltaf er hægt að reikna sig að réttri niður-stöðu. Sú hlið fjármála er auðvitað til staðar, en við erum tilfinningaverur, skrítnar skrúfur, með flókið samband við peninga og við tökum -flestar -okkar peninga-ákvarðanir út frá tilfinningu, ekki rökhyggju. Við tökum -þessar ákvarðanir við kvöldverðarborðið eða í fundarherbergi þar sem okkar persónu-lega reynsla, heimssýn, egó, stolt og hvatar blandast saman og hafa áhrif.