Skoða bók
Orri óstöðvandi
1
03:08 klst.
2018
Orri óstöðvandi er fyrsta bókin um þau Orra og Möggu en uppátækjum þeirra virðast engin takmörk sett og útkoman er bráðskemmtileg. Orri óstöðvandi er ofurhetjuútgáfan af Orra sem hann breytir sér í þegar hann þarf á hugrekki og sjálfstrausti á að halda. Eða eins og Orri segir sjálfur: "Ég heiti Orri, glaðlyndur og hugmyndaríkur 11 ára íþróttastrákur. Orri óstöðvandi er ofurhetjuútgáfa af sjálfum mér. Eini munurinn á honum og mér er sá að hann er hugrakkari og með meiri trú á sér. Í þessari fyrstu bók um mig og vinkonu mína hana Möggu Messi, sem er sko geggjuð í fótbolta og uppátækjasöm með eindæmum, ætla ég að segja þér frá BESTA ÁRI LÍFS MÍNS." Hugmyndin að baki bókinni var að gera fyndna og spennandi bók sem væri í senn sjálfstyrkjandi fyrir lesandann.
Barna- og unglingabækur Fyndni Orri óstöðvandi (sögupersóna) Sjálfsstyrking Skáldsögur Strákar Vinátta Íslenskar bókmenntir Íþróttir