Skoða bók
Jóhannes Einarsson : Minningabrot
05:53 klst.
2020
Jóhannes Einarsson verkfræðingur hefur átt fjölbreytta starfsævi, þótt hann sé fyrst og fremst kunnur fyrir að hafa haslað sér völl í alþjóðlegum flugheimi. Að loknu verkfræðiprófi í Bandaríkjunum var Jóhannes einn af fyrstu starfsmönnum Íslenskra aðalverktaka á Keflavíkurflugvelli. Síðan var hann í sex ár verksmiðjustjóri í nýrri verksmiðju Coldwater, fisksölufyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Bandaríkjunum. Eftir það réðst hann til Loftleiða sem þá var á hátindi velgengnisára sinna. Sem einn af framkvæmdastjórum Loftleiða vann Jóhannes meðal annars að stofnun Cargolux í Lúxemborg. Þangað flutti Jóhannes svo á miðjum aldri og varð einn af yfirmönnum Cargolux sem á fáum árum varð eitt af stærstu vöruflutningafélögum heims. Þegar Jóhannes lét af daglegum störfum varð hann ræðismaður Íslands í Mónakó. Í þessari bók rekur Jóhannes viðburðarika starfsævi og segir hispurslaust frá því sem á daga hans hefur drifið - ekki síst hörðum átökum í viðskiptalífinu.
Athafnamenn Cargolúx Endurminningar Flugsaga Jóhannes Einarsson 1929 Loftleiðir Lúxemborg Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna Verkfræðingar Ævisögur