Skoða bók

Konur sem kjósa : aldarsaga

Erla Hulda Halldórsdóttir   Kristín Svava Tómasdóttir   Ragnheiður Kristjánsdóttir   Þorgerður H. Þorvaldsdóttir  

Ólöf Rún Skúladóttir   Helga Elínborg Jónsdóttir  

22:58 klst.  

2020  

Konur sem kjósa fjallar um íslenska kvenkjósendur í eina öld. Titillinn vísar til kosningaréttarins en einnig til þess hvernig konur sköpuðu sér rými til að móta eigið líf og samfélagið allt. Sjónum er beint að einu kosningaári á hverjum áratug og þannig teknar ellefu sneiðmyndir af sögu kvenna undanfarin hundrað ár. Fjallað er um kvennablöð og kvennaframboð, kvennafrí og kvennaverkföll, um baráttu kvenna fyrir hlutdeild í stjórn landsins og frelsi til að ráða menntun sinni og atvinnu, barneignum og ástarsamböndum. Við sögu koma konur úr öllum stéttum, ungar og gamlar, úr sveit og bæ, húsfreyjur sem börðust fyrir rafmagni, vatnsveitu og heilnæmri mjólk og konur sem brutu blað þegar þær urðu læknar, bílstjórar, veðurfræðingar, snyrtivöruframleiðendur og rafvirkjar. Áður ósagðar sögur kvenna njóta sín í lifandi texta og bókina prýðir fjöldi mynda af konum í leik og starfi í hundrað ár og er þeim lýst eftir því sem við er komið. Konur sem kjósa er stórvirki sem byggir á áralöngum rannsóknum og samvinnu fjögurra fræðimanna á sviði kvenna- og kynjasögu, stjórnmála- og menningarsögu.  

20. öld 21. öld Femínismi Jafnréttismál Konur Kosningar Kvennabarátta Kvennasaga Kvenréttindamál Rauðsokkahreyfingin Stjórnmál Ísland Íslandssaga