Skoða bók

Fugladómstóllinn

Ravatn, Agnes  

Herdís Magnea Hübner  

Ásdís Thoroddsen  

07:56 klst.  

2021  

Seyðandi og grípandi sálfræðitryllir eftir Agnesi Ravatn, einn áhugaverðasta rithöfund Noregs um þessar mundir. Sjónvarpskonan Allis Hagtorn yfirgefur mann sinn og starf til að fara í sjálfskipaða útlegð í afskekktu húsi í fáförnum norskum firði. Þó er ekki allt sem sýnist varðandi hið nýja hlutverk hennar sem ráðskona og garðyrkjumaður. Vinnuveitandi hennar, hinn þögli og þumbaralegi Sigurd Bagge, er ekki gamli maðurinn sem hún hafði búist við. Á meðan þau bíða þess að kona hans snúi heim úr ferðalagi þróast samskipti þeirra upp í hrollvekjandi þráhyggjukennt samband og ljóst verður að ekki nægir að friðþægja fyrir fyrri syndir. Fugladómstóllinn er spennandi og fallega skrifaður sálfræðitryllir sem magnast stig af stigi að átakanlegum hápunkti svo að lesandinn stendur á öndinni. Þessi spennusaga hefur notið mikilla vinsælda í Noregi en leikgerð bókarinnar gekk fyrir fullu húsi í norska þjóðleikhúsinu í tvö ár.  

Norrænar spennusögur Norskar bókmenntir Skáldsögur Spennusögur Þýðingar úr norsku