Skoða bók

Listin að vera fokk sama

Manson, Mark  

Magnea J. Matthíasdóttir  

Kristján Franklín Magnús  

07:13 klst.  

2021  

Sumar sjálfshjálparbækur hvetja lesandann til að vera besta útgáfan af sjálfum sér, aðrar segja okkur að allt fari vel ef við bara óskum þess nógu heitt og erum nógu jákvæð. Ekki þessi bók. Höfundinum er drullusama um alla jákvæðni og góða strauma. Þessi bók gefur skít í að leysa vandamál þín eða lina þjáningar. Og einmitt þess vegna getur þú verið viss um að hún er heiðarleg. Það er vandmeðfarin list að vera fokk sama. Að velja á milli þess sem skiptir mann máli og þess sem manni ætti að vera nákvæmlega sama um er ótrúlega erfitt. Til þess þarf langa þjálfun og sjálfsaga. Og þér á eftir að mistakast það margsinnis. En þetta gæti vel verið mikilvægasta glíman sem þú þreytir á ævinni.  

Hagnýt sálfræði Sjálfshjálparbækur Sjálfsstyrking Þýðingar úr ensku