Sumarlokun

Hljóðbókasafn Íslands lokar frá 15. júlí til 6. ágúst. Lokað er fyrir pöntun diska á þessu tímabili en við bendum á að áfram er opið fyrir niðurhal og streymi til skráðra lánþega safnsins.

Skoða bók

Frjáls : Æska í skugga járntjaldsins

Ypi, Lea  

Eyrún Edda Hjörleifsdóttir  

Olga Guðrún Árnadóttir  

11:04 klst.  

2021  

Lea Ypi ólst upp í Albaníu sem þá var eitt einangraðasta land heims. Hugmyndafræði kommúnismans var upphaf og endir alls, og það var nánast ómögulegt að heimsækja landið - hvað þá að yfirgefa það. Biðraðir, skortur, aftökur og njósnir voru daglegt brauð en samfélagsandinn var sterkur; allir voru jafningjar, nágrannar hjálpuðust að og fólk bar von í brjósti. Í desember 1990 breyttist allt. Styttum leiðtoganna var steypt af stalli og fólk mátti skyndilega kjósa, klæðast og trúa hverju sem það vildi. En verksmiðjum var lokað hverri af annarri og fólk flúði þúsundum saman. Svindlarar keyrðu landið í þrot, óeirðir brutust út og eftir því sem vonbrigðin jukust fór Lea að velta því sífellt meira fyrir sér hvað fælist í rauninni í því að vera frjáls. Frjáls er heillandi ævisaga um uppvöxt á óróatímum. Með skarpskyggni og húmor að vopni varpar höfundur ljósi á fortíðardrauga og framfarabrölt, hugsjónir og veruleika - og síðast en ekki síst fólkið sem lenti í brimróti sögunnar.  

Albanía Endurminningar Kommúnismi Konur Marxismi Prófessorar Sjálfsævisögur Ypi, Lea 1979- Ævisögur