Sumarlokun

Hljóðbókasafn Íslands lokar frá 15. júlí til 6. ágúst. Lokað er fyrir pöntun diska á þessu tímabili en við bendum á að áfram er opið fyrir niðurhal og streymi til skráðra lánþega safnsins.

Skoða bók

Bókafárið mikla

Sharpe, Tom  

Helgi Ingólfsson  

Árni Blandon  

11:20 klst.  

2023  

Rithöfundurinn Peter Piper er sannfærður um eigin snilli en gengur illa að fá gefna út sína fyrstu bók. Dag einn fær hann tilboð sem hann getur ekki hafnað. Honum býðst, gegn ríflegri greiðslu og loforði um útgáfu eigin verka, að gerast staðgengill höfundar, sem vill ekki láta nafn síns getið, að svæsinni skáldsögu sem slær í gegn á heimsvísu. Kemur Peter sér þar með í kostuleg vandræði sem engan enda virðast ætla að taka. Meinfyndin og gamansöm ádeila um heim bóka, rithöfunda og útgefenda ¿ stundum með farsakenndum hætti en einnig með hárbeittum undirtóni. Tom Sharpe (1928-2013) var á sinni tíð oft kallaður fyndnasti höfundur Bretlands og gamansögur hans njóta enn mikillar hylli. Í Bókafárinu mikla gerir hann grín að heimsbókmenntunum, bókmenntakenningum, saklausum rithöfundum, útsmognum umboðsmönnum, ófyrirleitnum útgefendum - og eiginlega öllu sem á vegi verður.  

Breskar bókmenntir Fyndni Skáldsögur Þýðingar úr ensku