Sumarlokun

Hljóðbókasafn Íslands lokar frá 15. júlí til 6. ágúst. Lokað er fyrir pöntun diska á þessu tímabili en við bendum á að áfram er opið fyrir niðurhal og streymi til skráðra lánþega safnsins.

Skoða bók

Horfinn heimur

Þröstur Ólafsson  

Kristján Franklín Magnús  

13:00 klst.  

2023  

Ungur maður kemur beint úr kyrrstæðu samfélagi Húsavíkur upp úr 1960 til að læra hagfræði og er skyndilega staddur í skarkala stórborgarinnar. Hann er kominn til Berlínar; múr milli austurs og vesturs er nýreistur og óuppgerðar sakir nasismans krauma enn. Handan við hornið bíða æskulýðsuppreisn og ókyrrð 68-kynslóðarinnar. Allt þetta mótar hann fyrir lífstíð. Þetta er um margt óvenjuleg minningabók. Þröstur er mjög hreinskilinn og óvæginn á köflum, ekki síst við sjálfan sig. Í gegnum allt skín mannúð og rík þörf fyrir að skilja og greina. Lífsstarf Þrastar Ólafssonar hefur verið fjölbreytt á sviði menningar, verslunar og stjórnmála. Hann var í forsvari fyrir Mál og menningu á umbrotatímum, var samverkamaður Guðmundar J. Guðmundssonar hjá Dagsbrún og aðstoðaði ráðherra frá Magnúsi Kjartanssyni og til Jóns Baldvins Hannibalssonar. Hér er ýmsu lýst sem gerðist á bak við tjöldin þegar miklir atburðir áttu sér stað í þjóðlífinu, átökum og erfiðum samningum. Margvíslegar minningar eru í bókinni um þau sem næst honum stóðu, flestar ljúfar en sumar sárar. Loks lítur hann yfir sviðið og hugleiðir brýnustu verkefni okkar daga, m.a. umhverfismál, en í bókinni er kafli helgaður bróður Þrastar, Guðmundi Páli, hinum þjóðkunna baráttumanni fyrir náttúruvernd, og þeirra nána sambandi.  

20. öld Endurminningar Hagfræðingar Stjórnmál Verkalýðsmál Ævisögur Þröstur Ólafsson 1939-