Skoða bók

Konan í klefa 10

Ware, Ruth  

Berglind Baldursdóttir  

Dagmar Íris Gylfadóttir  

10:24 klst.  

2018  

Hvernig stöðvar maður morðingja sem enginn trúir að sé til? Lo Blacklock, blaðakona sem skrifar fyrir ferðatímarit, hefur nýlega fengið besta verkefni lífs síns; vikuferð á lúxus-skemmtiferðaskipi með aðeins örfáum klefum. Himinninn er blár, hafið kyrrt og vingjarnlegu útvöldu gestirnir eru fullir kátínu þegar skemmtiferðaskipið Aurora hefur ferð sína í hinum stórfenglega Norðursjó um norsku firðina. Í fyrstu er dvöl Lo ekkert annað en ánægjuleg; klefarnir eru íburðarmiklir, matarboðin glæsileg og gestirnir áhugaverðir. En þegar líður á vikuna byrja ískaldir vindar að blása, himinninn gránar og Lo verður vitni að því sem hún getur aðeins lýst sem myrkri og hryllilegri martröð: Konu er fleygt fyrir borð. Vandamálið? Allir farþegarnir eru um borð svo skipið siglir áfram eins og ekkert hafi í skorist, þrátt fyrir örvæntingarfullar tilraunir Lo til að sýna fram á að eitthvað (eða einhver) hafi farið hræðilega úrskeiðis. Bókinni er lýst sem blöndu af Konunni í lestinni og Agöthu Christie. Spenna frá upphafi til enda!  

Breskar bókmenntir Glæpasögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Þýðingar úr ensku