Skoða bók

Maðurinn í skiltinu

Ferrada, María José  

Jón Hallur Stefánsson  

Stefán Már Sigurðarson  

03:32 klst.  

2025  

Þegar Ramón býðst að vakta risastórt auglýsingaskilti Coca-Cola-fyrirtækisins við þjóðveg í hverfinu grípur hann tækifærið og ákveður að setjast að í skiltinu í leit að merkingu hlutanna. Ákvörðun hans kemur illa við nágrannana, sem finnst hann ógna heiðri hverfisins, og fyrr en varir taka þeir málin í sínar hendur. Skáldsaga byggð á sannsögulegum atburði eftir síleska rithöfundinn Maríu José Ferrada. Maðurinn í skiltinu er önnur skáldsaga hennar en sú fyrsta, Kramp, kom út hjá Angústúru árið 2023. Ferrada hefur í þrígang unnið til verðlauna síleska menningarmálaráðuneytisins.  

Chileskar bókmenntir Skáldsögur Suður-amerískar bókmenntir Síleskar bókmenntir Þýðingar úr spænsku