Skoða bók

Líf

Reynir Finndal Grétarsson  

Orri Huginn Ágústsson  

09:27 klst.  

2026  

Fjölskyldufaðir finnst látinn á heimili sínu og virðist hafa fallið fyrir eigin hendi. Við krufningu kemur í ljós örlítið frávik sem breytir öllu. Guðrún Ýr Ingimarsdóttir rannsóknarlögreglumaður tekur að sér málið. Hún er eldskörp en líka þrjósk og rekst gjarnan á veggi kerfisins. Í ljós kemur að þetta er aðeins upphafið að miklu stærri ráðgátu. Þræðirnir liggja inn í heim valda, spillingar og leyndarmála sem einhver er tilbúinn að verja með blóði. Í skuggunum bíður sá sem skilgreinir morð ekki sem glæp, heldur list. Líf er ófyrirsjáanlegur sálfræðitryllir sem kafar djúpt í myrkustu afkima mannlegs eðlis. Reynir Finndal Grétarsson leiðir lesandann inn í hugarheim þar sem sannleikurinn er aldrei einfaldur og siðferði er afstætt. Lesandinn er orðlaus að lestri loknum.  

Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir