Skoða bók

Akureyrarveikin

Óskar Þór Halldórsson  

Björn Friðrik Brynjólfsson  

15:01 klst.  

2025  

Veturinn 1948-1949 varð alvarlegur veikindafaraldur á Akureyri. Í byrjun var talið að um væri að ræða lömunarveiki en síðar kom í ljós að svo var ekki og enn þann dag í dag hefur ekki verið leitt í ljós hvers konar veiki þetta var. Frá því um mitt ár 1949 hefur faraldurinn ávallt verið kallaður Akureyrarveikin - á ensku Akureyri disease eða Iceland disease. Talið er að um eitt þúsund manns á Akureyri hafi veikst. Aftur stakk veikin sér niður 1955-1956 á Vestfjörðum og í Þistilfirði. Í bókinni er fjallað um Akureyrarveikina, útbreiðslu hennar og afleiðingar, oft með átakanlegum lífsreynslusögum. Margir náðu sér aldrei til fulls. Höfundur ræddi við fjölda fólks og studdist við umfangsmiklar heimildir til að varpa ljósi á mál sem lengi hefur legið í þagnargildi. Áratugum eftir þennan faraldur beinist athygli vísindafólks aftur að honum því mikil líkindi eru með Akureyrarveikinni, ME-sjúkdómnum og alvarlegum eftirköstum COVID-19.  

20. öld Akureyri Farsóttir Ísland