Skoða bók
Lagalisti ástarinnar
Stefán Már Sigurðarson Dagmar Íris Gylfadóttir
11:42 klst.
2022
Heimur Sloan hrundi þegar hún missti unnusta sinn nokkrum vikum áður en þau ætluðu að gifta sig. Tveimur árum seinna hefur hún ekki enn náð tökum á lífi sínu. En hundurinn Tucker, sem stökk inn um topplúguna á bílnum hennar og mændi á hana biðjandi hvolpaaugum, er um það bil að breyta öllu til batnaðar. Eftir margar árangurslausar tilraunir gefst Sloan upp á að finna eiganda Tuckers. Þegar eigandinn, Jason, hefur loks samband og vill fá hundinn sinn aftur er Sloan hreint ekki á því að gefa hann eftir baráttulaust. Við taka samningaviðræður sem breytast fljótt í daðursleg skilaboð sem þróast yfir í löng símtöl. Jason er indæll, fyndinn og heitur. Hver veit hvað gerist þegar þau hittast loksins? Og stóra spurningin...þar sem Jason er tónlistarmaður á barmi heimsfrægðar, er pláss fyrir Sloan í lífi hans? Stefnir hún í aðra hjartasorg? Og myndi hún lifa það af?
Bandarískar bókmenntir Ljúflestrarbækur Skáldsögur Ástarsögur Þýðingar úr ensku