Skoða bók

Skraparotsnóttin

Mytting, Lars  

Jón St. Kristjánsson  

Pétur Eggerz  

Systraklukkurnar  

17:49 klst.  

2025  

Noregur er hernuminn af Þjóðverjum sem sölsa undir sig gamla prestssetrið á Bútanga. Systkinin Tarald og Astrid Hekne bregðast á ólíkan hátt við ástandinu, hann er hallur undir Þjóðverja en Astrid, sem líkist ömmu sinni og nöfnu æ meira, gengur í andspyrnuhreyfinguna. Þetta eru miklir hættutímar og hinn aldni séra Kai Schweigaard og Astrid finna styrk hvort hjá öðru í baráttunni gegn óvininum. Þau þekkja vel spádóma hins dularfulla og forna Hekneteppis sem segja meðal annars til um endalok síðasta prestsins á Bútanga og frá Skraparotsnóttinni, sjálfum dómsdegi. Skraparotsnóttin er stórkostleg örlagasaga um norskt sveitasamfélag á stríðstímum. Með bókinni lýkur Lars Mytting, einn vinsælasti höfundur Norðmanna, magnaðri sögu Hekneættarinnar. Bækurnar hafa hlotið geysigóðar viðtökur víða um heim og fjöldamargar viðurkenningar. Fyrri bindin tvö, Systraklukkurnar og Heknevefurinn, hafa verið afar vinsæl meðal íslenskra lesenda sem fá nú sögulokin í frábærri þýðingu Jóns St. Kristjánssonar.  

Norskar bókmenntir Skáldsögur Sögulegar skáldsögur Þýðingar úr norsku