Skoða bók
Kalli á Hrauni : Brot úr sögu ættar og jarðar í eina öld
11:00 klst.
2025
Jörðin Hraun í Ölfusi hefur verið í byggð síðan á landnámstíð. Hið minnsta fimm þjóðleiðir fara um hlaðið á Hrauni og því hafa fjölmargir ferðalangar komið þar við, þegið kost og gistingu. Jörðin liggur á mörkum Ölfusfora í austri en sandauðnar í vestri. Hafa þessar andstæður bæði valdið búsifjum en einnig veitt hlunnindum til ábúenda Hrauns í gegnum tíðina. Í bókinni er fjallað um fjórar kynslóðir sem hafa búið á Hrauni frá miðri nítjándu öld en sama ætt hefur yrkt jörðina síðan árið 1835. Sagan snýst að mestu um Karl Þorláksson (1915 - 1995) bónda á Hrauni en einnig er brugðið upp skemmtilegum myndum af fjölskyldu, vinum og samferðafólki. Fjallað er um búskaparhætti, menn og málefni á lifandi hátt.
Byggðasaga Hraun í Ölfusi Karl Þorláksson 1915-1995 Ábúendatöl Árnessýsla Ævisögur Æviþættir Ölfus