Skoða bók

Dauðar sálir syngja ekki

Adler-Olsen, Jussi   Bolther, Stine   Holm, Line  

Jón Hallur Stefánsson  

Kolbeinn Arnbjörnsson  

Carl Mørck og Deild Q  

11 

14:30 klst.  

2026  

Skotheldur spennutryllir um barnslegt sakleysi og brostna drauma, ódæði, svik og ábyrgð - hröð og grípandi atburðarás, sannfærandi persónur og leiftrandi danskur húmor. Carl Mørck hefur sagt skilið við lögregluna og einbeitir sér að glæpasagnaskrifum en gamla starfið eltir hann uppi: Hann fær í hendur hljóðupptöku sem varpar nýju ljósi á óhugnanlegt mál sem talið var leyst fyrir löngu og lætur sína fyrri félaga í Deild Q vita. Í deildinni eru nú aðeins eftir Assad og Rose - og nýja konan, Helena, sem er einkennilega spör á upplýsingar um fortíð sína. En fleiri eiga sér leyndarmál og sum þeirra eitra út frá sér; gamlar misgerðir gleymast ekki heldur verða uppspretta beiskju og grimmilegs hefndarþorsta. Bækurnar um Deild Q hafa farið sigurför um heiminn. Með þessari sögu gengur bókaflokkurinn í endurnýjun lífdaga eftir starfslok Carls Mørck  

Danskar bókmenntir Deild-Q Glæpasögur Lögreglurannsóknir Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Þýðingar úr dönsku