Skoða bók
Lokar augum blám
lögregluteymið Ragna og Bergur
2
08:27 klst.
2026
Á miðju sumri hverfa tveir ungir kajakræðarar sporlaust vestur í Dýrafirði. Rannsóknarlögreglumaðurinn Bergur er fluttur á Flateyri og tekur málið að sér, ásamt fyrrverandi samstarfskonu sinni, Rögnu, sem er kölluð vestur. Á sama tíma vinnur par að endurbótum á gömlu húsi á Flateyri. Eftir ógæfusöm ár í höfuðborginni þrá þau kyrrlátt líf á fallegum stað en húsið reynist eiga sér nöturlega sögu. Lokar augum blám er þriðja bók Margrétar S. Höskuldsdóttur og önnur bókin sem fjallar um lögregluteymið Rögnu og Berg. Þetta er Vestfjarðaglæpasaga í klassískum anda sem fær hárin til að rísa. Bókin hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, árið 2025.
Glæpasögur Lögreglurannsóknir Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir Íslensku glæpasagnaverðlaunin