Skoða bók
Dagar mínir í Morisaki-bókabúðinni
04:51 klst.
2026
Þegar Takako missir í einu vetfangi kærastann, vinnuna og trúna á sjálfa sig, býðst henni óvænt skjól hjá sérvitringnum frænda sínum í lítilli fornbókabúð í Tókýó. Jimbocho-hverfið iðar af lífi, ágeng kryddangan er í loftinu og neonljós borgarinnar flökta stöðugt en í Morisaki-bókabúðinni opnast annar heimur - kyrrlátur, hlýr og fullur af sögum. Þar hefst heillandi ferðalag sem á eftir að umbreyta lífi Takako. Dagar mínir í Morisaki-bókabúðinni er seiðandi saga um vináttu sem sprettur á ólíklegustu stöðum, sérkennilega fastagesti og ómótstæðilega japanska menningu. Satoshi Yagisawa hlaut verðskuldaða athygli fyrir þessa hrífandi sögu sem hefur komið út víða um heim og var kvikmynduð í Japan.
Japanskar bókmenntir Kvikmyndaðar bækur Skáldsögur Þýðingar úr ensku