Skoða bók
Rækjuvík
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir (f. 1979)
02:44 klst.
2025
Eftir langan, dimman vetur og vægast sagt glatað vor, er sólin loksins mætt til Reykjavíkur. Tvíburasystkinin Inga og Baldur eru komin í sumarfrí með öllu sem því fylgir og líka ýmsu óvæntu, eins og björgunarleiðangri fyrir úthafsrækju. Það er einmitt í þeim leiðangri sem forvitni þeirra er vakin þegar þau finna dularfullt flöskuskeyti sem marar í hálfu kafi í sjónum nálægt heimili þeirra. Þau ákveða að rannsaka málið á sinn einstaka hátt og ævintýri hversdagsins hefjast! Bókinni fylgja alls konar aukahlutir því að það er svo skemmtilegt. Kíktu í vasann aftast í bókinni! Rækjuvík er bráðskemmtileg, fyndin og fjörug bók um systkini sem eru jafn ólík og dagur og nótt. Hún er sjálfstætt framhald Grísafjarðar og Héragerðis.
Barna- og unglingabækur Barnabókmenntir (skáldverk) Fyndni Skáldsögur Íslenskar barna- og unglingabækur Íslenskar bókmenntir