Skoða bók

Rottukóngurinn

Engman, Pascal  

Sunna Dís Másdóttir  

Karl Emil Gunnarsson  

10:56 klst.  

2026  

Hér er á ferðinni margslungin og metnaðarfull glæpasaga sem varpar ljósi á hinar fjölmörgu birtingarmyndir ofbeldis í garð kvenna í nútímanum. Geysiþétt og gríðarvel fléttuð bók eftir höfund af yngri kynslóðinni sem þykir feta í fótspor Hennings Mankell og höfundaparsins Sjöwall og Wahlöö. Kona á þrítugsaldri er stungin til bana á heimili sínu í Stokkhólmi. Allt bendir til þess að barnsfaðir hennar, meðlimur í glæpagengi og þekktur ofbeldishrotti, sé sá seki. En Vanessu Frank hjá rannsóknarlögreglunni grunar að málið sé alls ekki svo einfalt enda bakslag í MeToo-byltingunni áþreifanlegt og vaxandi fylgi kvenhataranna í stafrænu Incel-hreyfingunni vekur ugg. Og þeir láta sér ekki allir nægja að fá útrás fyrir hatrið við tölvuna... Pascal Engman (f.1986) hefur sópað að sér verðlaunum og viðurkenningum síðan hann gaf út fyrstu glæpasöguna árið 2017. Meðal annars hlaut Rottukóngurinn bresku Petrona-verðlaunin 2023 og bækur Engmans hafa verið þýddar á meira en 20 tungumál.  

Glæpasögur Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Sænskar bókmenntir Þýðingar úr sænsku