Skoða bók

Hringur fiskimannsins : Frændgarður illvirkjanna

Helga María Bragadóttir  

Pétur Eggerz  

11:00 klst.  

2025  

Hringur fiskimannsins er söguleg skáldsaga af íslenskum aðli miðalda, átökum um fiskimið þjóðarinnar og yfirráð yfir landinu. Herra Eiríkur Sveinbjarnarson, riddari og hirðstjóri, stjórnaði Íslandi 1322-1340 ásamt Skálholts- og Hólabiskupum undir litlu eftirliti Noregskonungs. Eiríkur og Vilborg, eiginkona hans, eru talin ein frægustu hjón Íslands á fyrri hluta fjórtándu aldar. Þótt þau hafi erft tvö af stærstu kirkju- og höfuðbólum Íslands ólust þau upp í Noregi í skjóli Hákonar konungs háleggs. Í krafti gífurlegrar auðsöfnunar af sölu fisks frá Íslandi til Englands eignuðust þau fasteignir víða um Evrópu, auk lausafjár sem þau áttu í bönkum erlendis. Þrátt fyrir ævintýralegt líferni, glímdu Eiríkur og Vilborg einnig við mótlæti, öfundsýki og hatur. Óblíð náttúra Íslands lék þau illa þegar jarðskjálfti skók Suðurland illyrmislega vorið 1340 og ári síðar gaus Hekla með hörmulegum afleiðingum. Hömlulaus metnaður Eiríks átti eftir að koma honum og fjölskyldu hans í koll, eins og þessi sögulega skáldsaga gerir góð skil.  

Skáldsögur Sögulegar skáldsögur Ísland Íslenskar bókmenntir