Skoða bók
Fæðingarsögur feðra
Gréta María Birgisdóttir Ísak Hilmarsson
Ísak Hilmarsson Björn Friðrik Brynjólfsson Eggert A. Kaaber Pétur Eggerz
08:02 klst.
2025
Fæðingarsögur feðra inniheldur sögur frá feðrum af fæðingum barna þeirra. Sögurnar í bókinni eru nafnlausar og skrifaðar af feðrunum sjálfum. Þær veita góða innsýn í upplifun og sjónarhorn feðra af meðgöngu, fæðingu og fyrstu augnablikunum í lífi barna þeirra. Sögurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar og koma frá feðrum á mismunandi aldri. Þær segja frá flestum tegundum fæðinga, frá keisaraskurðum, fæðingum í heimahúsi, á sjúkrahúsi, í sjúkrabíl, á fæðingarheimilum og einnig erlendis. Með bókinni vilja höfundar opna á umræðuna um upplifun feðra af fæðingum og vekja athygli á hlutverki þeirra og þátttöku í barneignarferlinu. Eins er von um að bókin hvetji til umræðu um upplifun fólks af fæðingum barna sinna, hvort sem er við hitt foreldri barnsins eða á milli kynslóða. Bókin er góð lesning fyrir öll þau sem hafa áhuga á að skyggnast inn í hugarheim feðra þegar kemur að fæðingum barna þeirra. Hefur þú heyrt söguna af því þegar þú komst í heiminn?