Skoða bók

Kona að hálfu

Murugan, Perumal  

Elísa Björg Þorsteinsdóttir  

Ólöf Rún Skúladóttir  

Angústúra, áskriftarröð  

06:42 klst.  

2026  

Ponna og Kali reyna hvað þau geta til að eignast barn en allt kemur fyrir ekki. Síðasta hálmstráið er lokakvöld árlegrar musterishátíðar, þegar allir karlar eru guðir, en það gæti reynst þeim dýrkeypt. Ljúfsár saga um ást og hefðir, stéttskiptingu og þvingandi væntingar samfélags. Perumal Murugan (f. 1966) er þekktasti rithöfundur Tamli Nadu-héraðs á Indlandi og jafnframt eini tamílski höfundurinn sem hlotið hefur tilnefningu til alþjóðlegu Booker-verðlaunanna. Lýsingar hans á helgisiðum héraðsins í Kona að hálfu vöktu mikla reiði trúarhópa á svæðinu og mátti Murugan sæta ofsóknum og ákærum, sem hæstiréttur í Madras ógilti síðar. Kona að hálfu hefur verið þýdd á átján tungumál. Áður hefur komið út á íslensku bókin Saga af svartri geit eftir sama höfund.  

Indverskar bókmenntir Skáldsögur Þýðingar úr ensku