Skoða bók
Algjör Perla
09:03 klst.
2026
Þegar Perla rankar við sér á Landspítalanum eftir heilablóðfall snýst hennar fyrsta hugsun aðeins um eitt: Bannsett líkið, sem getur alveg ómögulega verið áfram þar sem það er. En hvað getur hálflömuð manneskja á áttræðisaldri tekið til bragðs í slíkri stöðu? Vitanlega getur hún ekki blandað nokkrum í svo viðkvæmt mál. En það má komast ansi langt á þrjóskunni og hugvitinu einu saman... og stundum fær kona í neyð liðsauka úr óvæntustu átt. Alþekkt kímnigáfa Jónínu Leósdóttur nýtur sín sérstaklega vel í þessari margslungnu og hlýlegu sögu sem kemur sífellt á óvart.
Fyndni Glæpasögur Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir