Skoða bók
Landamæralaus
12:21 klst.
2009
Yfirgefin bifreið við vegkant hverfur hægt sjónum eftir því sem fannfergið eykst. Inni í bílnum er svar við flókinni morðgátu sem enn er óleyst. Hópur fólks hefur tekið sig saman á netinu um að vinna saman að því að leysa óleyst sakamál. Stjórnandi hópsins hefur samband við Wisting lögregluforingja vegna rannsóknar á morði á áströlskum bakpokaferðalangi í Noregi. Einn virkasti meðlimur hópsins, Astria, kveðst vera norsk. Þegar hún skýrir frá því að hún sé við það að leysa málið, hverfur hún af netinu og enginn í hópnum hefur heyrt frá henni síðan. Án þess að ætla sér það laðast Wisting að þessari óhefðbundnu rannsókn. En vísbendingarnar reynast margar og óljóst hvert þær leiða Tilnefning til Petrona-verðlaunanna sem besta norræna glæpasagan í Bretlandi. Metsöluhöfundurinn Jørn Lier Horst (1970) var háttsettur rannsóknalögreglumaður í Noregi en frá 2023 hefur hann einvörðungu sinnt ritstörfum. Bækur hans um William Wisting hafa selst í milljónum eintaka. Þær hafa verið þýddar á fjölda tungumála og vinsælar sjónvarpsþáttaraðir hafa verið gerðar eftir þeim.
Norrænar spennusögur Norskar bókmenntir Sakamálasögur Skáldsögur Wisting, William (sögupersóna) Þýðingar úr norsku