Uppfært app fyrir iPhone - Vinsamlegast uppfæra

Við erum komin með nýja útgáfu af appinu okkar fyrir iPhone.
Vinsamlegast smella hér og uppfæra appið.

Skoða bók

Í augum þínum verð ég til : um ástina

Guðbrandur Árni Ísberg  

Guðbrandur Árni Ísberg  

08:44 klst.  

2026  

Enda þótt þörfin fyrir að vera elskaður sé manninum í blóð borin gegnir öðru máli um getuna til að sýna ást ? hana þarf að læra. Hvað þarf maður að kunna í því sambandi til að geta verið góður vinur, ástríkt foreldri og stuðningsríkur maki? Hvaða færni þarf manneskja að tileinka sér til að líða vel með samferðafólki sínu? Svör við þessum spurningum má finna í þróunarsögu mannsins, hugmyndum fyrri kynslóða um eðli kærleikans og í niðurstöðum rannsókna á heilbrigðum samskiptum og samböndum. Til að gera fræðilega umfjöllun lifandi má finna fjölda dæma í bókinni um samskiptamynstur og atferli sem flestir geta tengt við. Í augum þínum verð ég til - um ástina er fyrir hvern þann sem langar til að auka þekkingu sína á ástinni. Aðaláherslan er á rómantíska ást og heilbrigð langtímasambönd en samskipti vina, foreldra og barna fá einnig sitt rými. Ástin lætur hafa fyrir sér á sama tíma og hún nærir, gleður og græðir.  

Hagnýt sálfræði Samskipti Ást