Skoða bók
Leyndardómur bláu lestarinnar
08:17 klst.
2026
Belgíski rannsóknarlögreglumaðurinn Hercule Poirot er á leið til frönsku Rívíerunnar. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar að hvílast og njóta lífsins um borð í lúxuslestinni bláu, Le Train Bleu. Í lestinni hittir hann fyrir dóttur þekkts bandarísks auðmanns, Ruth Kettering. Hún er á leið til fyrrverandi elskhuga síns. Morguninn eftir finnst hún myrt og dýrmætir skartgripir hennar eru horfnir. Sögur fara á kreik um að ókunnugur maður hafi verið á sveimi í lestinni. Það er allt og sumt sem Poirot hefur að byggja á. Smám saman kemur í ljós ótrúlegur vefur blekkinga og leyndarmála sem Poirot þarf að greiða úr til að afhjúpa morðingjann. Sérstaklega áhugaverð spennusaga í klassískum anda. New York Herald Tribune Agatha Christie er ódauðleg. Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni Agatha Christie (18901976) er vinsælasti skáldsagnahöfundur allra tíma. Aðeins Biblían og verk Shakespeares hafa selst í fleiri eintökum á heimsvísu en bækur Agöthu Christie. Meira en milljarður eintaka hefur selst af bókum hennar á ensku og annar milljarður til í þýðingum á um eitt hundrað tungumál.
Breskar bókmenntir Hercule Poirot (persóna) Ráðgátur Sakamálasögur Skáldsögur Spæjarar Þýðingar úr ensku