Skoða bók

Ást á prjónunum

Colgan, Jenny  

Helga Soffía Einarsdóttir  

Dagmar Íris Gylfadóttir  

09:43 klst.  

2026  

Gertie býr með mömmu sinni og ömmu í yndislegum, litlum bæ nyrst í Skotlandi, þar sem fólkið er samheldið og náttúran ægifögur. Það er þó ekki ævintýrum fyrir að fara hjá Gertie. Hún hefur unnið í sömu kjörbúðinni síðan hún lauk skóla og félagslíf hennar snýst aðallega um prjónaklúbb skoðanaglaðra kvenna. Milli þess sem hún fitjar upp á prjónana kryddar Gertie hversdaginn með dagdraumum sem hún dvelur í meira en gott þykir. En skjótt skipast veður í lofti í skosku Hálöndunum. Líf Gertie tekur stakkaskiptum þegar Morag, flugstjóri hjá MacIntyre Air, birtist einn daginn í kjörbúðinni og býður henni starf hjá flugfélaginu. Fyrr en varir er Gertie komin með nýja vinnu, flutt að heiman og gamli draumaprinsinn Struan bliknar í samanburði við norska flugvélamógúlinn Calum Frost. En nýja lífinu fylgja nýjar áskoranir. Tekst Gertie að koma ofan úr skýjaborginni og sýna hvað í henni býr? Stundum er raunveruleikinn ævintýralegri en dagdraumar. Sjálfstætt framhald af Skrifað í skýin.  

Breskar bókmenntir Ljúflestrarbækur Skáldsögur Ástarsögur Þýðingar úr ensku