Skoða bók
Flærðarsól : Óður til dauðans
01:00 klst.
2026
Úlfar Þormóðsson var djúpt sokkinn í að setja saman marglaga minningar þegar hann var skyndilega úrskurðaður dauðvona. Það bætti nýrri vídd við verkið - lífið breytist þegar dauðinn er afhjúpaður þar sem hann liggur í leyni. Úlfar úrskurðaði sig meira lifandi en dauðvona og hélt sínu daglega lífi áfram með dauðann sem ferðafélaga. Það glæðir þessa óvenjulegu bók lífi - en hún er um leið óður til dauðans. Eftir Úlfar liggja fjöldamargar bækur af ýmsum toga. Flærðasól er líklega síðasta bók Úlfars.