Skoða bók

Vinátta án landamæra

Dagný Dís Jóhannsdóttir   Erna M. Sveinbjarnardóttir  

Kristín Björk Kristjánsdóttir  

00:45 klst.  

2022  

Tveir strákar, einn frá Reykjanesbæ, annar frá Liverpool í Bretlandi kynnast. Síðan bætist stelpa frá Lyngby í Danmörku í hópinn og þá stelpa frá Grindavík og þau verða ágætir vinir og upplifa margt saman. Tvö þeirra gista á tjaldstæðinu við Myllubakkaskóla en þetta byrjaði allt með einu sparki á fótboltavellinum við Holtaskóla. Fótbolti kemur nokkuð við sögu því strákarnir eru miklir fótboltagaurar. Höfundar eru Erna M. Sveinbjörnsdóttir sérkennari og Dagný Dís Jóhannsdóttir sem var í 6. bekk þegar vinna við bókina hófst. Falleg saga um vináttu óháð uppruna. Bókin er skrifuð fyrir krakka á aldrinum 10 til 14 ára eða alla sem hafa áhuga á að efla lestrarfærni sína og hugsanlega æfa sig í ritun.  

Barna- og unglingabækur Barnabókmenntir (skáldverk) Íslenskar barna- og unglingabækur Íslenskar bókmenntir