Skoða bók

Sanna sagan um nefið á Gosa

Persson, Leif G. W.  

Jón Þ. Þór  

Kristján Franklín Magnús  

Serían um Evert Bäckström  

19:42 klst.  

2026  

Sanna sagan um nefið á Gosa er syndsamlegt ævintýri fyrir fullorðin börn. Ef ekki hefði notið við Nikulásar II, síðasta Rússakeisara, Winstons Churchill, Vladímírs Pútín og Everts Bäckström, lögregluforingja í Stokkhólmi, hefðu atburðir þessarar skáldsögu aldrei gerst. Í þeim skilningi er þetta saga um afleiðingar gjörða fjögurra manna á yfir hundrað ára tímabili þar sem sá elsti var ráðinn af dögum fjörutíu árum áður en sá yngsti fæddist. Og eins og svo oft áður, óháð því í hvaða félagsskap eða samhengi hann er staddur er það enginn annar en Bäckström sem bindur enda á söguna. Tilnefnd til hinna virtu CWA International Dagger-verðlauna í Bretlandi. Sanna sagan um nefið á Gosa er þriðja bókin í seríunni skemmtilegu um litla, feita og fordómafulla letihauginn Evert Bäckström lögregluforingja sem með einhverjum óskiljanlegum hætti tekst jafnan að skjóta kollegum sínum ref fyrir rass.  

Bäckström, Evert (sögupersóna) Norrænar spennusögur Sakamálasögur Sænskar bókmenntir Þýðingar úr sænsku