Skoða bók
Úrval smásagna
Þórarinn Eldjárn Björn Karlsson Guðmundur Ólafsson Hafþór Ragnarsson Halla Margrét Jóhannesdóttir Hannes Óli Ágústsson Kolbeinn Arnbjörnsson Ólöf Sverrisdóttir
11:09 klst.
2026
36 smásögur úr áður útgefnum bókum Þórarins Eldjárns, frá árunum 1981 til 2021. Kristján Þórður Hrafnsson valdi sögurnar og ritaði eftirmála. Í honum segir meðal annars: "Út úr smásögum Þórarins má hæglega lesa skilaboð sem mætti orða eitthvað í þessa veru: Sjáið hvað lífið getur verið flókið og skrýtið, við manneskjurnar undarlega saman settar, þversagnakenndar og breyskar, oftlega fórnarlömb alls konar tilviljana og aðstæðna sem við ráðum ekki við, stundum algjörir leiksoppar hugsana okkar, tilfinninga og langana. Við erum öll, hvert á sinn hátt, meiri eða minni ráðgáta. Húmor Þórarins Edljárns ljær mannlífinu sjarma fjölbreytileikans, óreiðunnar og skringilegaheitanna. Hann hjálpar okkur að horfast í augu við hið skrýtna í okkur manneskjunum og fáránleikann í tilverunni með bros á vör."