Skoða bók

Hvalamorð

Óskar Magnússon  

Guðmundur Ólafsson  

Stefán Bjarnason verjandi  

06:28 klst.  

2026  

Hvalveiðibátar Miðhvals hf. halda til veiða. Whalepeace, skip hvalfriðurnarsinna, er komið til hafnar í Reykjavík. Hvalavinir mótmæla á Austurvelli og við ónýtu hvalveiðibátana við Ægisgarð. Forsprakki hvalavinanna, Tom Waitrose, hverfur sporlaust. Er hann í fjórhjólaferð með Brad Pitt norður á Melrakkasléttu? Eða er hann liðið lík? Liggur Kjartan Leifsson forstjóri Miðhvals undir grun? Er hann í gæsluvarðhaldi? Hvalamorð er listilega fléttað sakamáladrama úr nútímanum, með óvæntum vendingum, sláandi atburðarás og ófyrirsjáanlegum endi - skrifuð á þróttmikilli íslensku sem einkennir bækur höfundar. Þrátt fyrir óhugnanlega atburði er stíllinn líðandi lipur, háðskur og kaldhæðinn - sagan launfyndin og grípandi samfélagsádeila.  

Glæpasögur Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Stefán Bjarnason hæstaréttarlögmaður (skálduð persóna) Íslenskar bókmenntir