Skoða bók

Dauðs manns kona

Wennstam, Katarina  

Friðrika Benónýsdóttir  

Þórunn Hjartardóttir  

Aldamótamorðin  

2 

14:57 klst.  

2026  

Fjórar konur, tengdar til lífstíðar af myrku leyndarmáli Snemmsumars 1897 lætur selskapsdaman Fredrika Nilsdotter draum sinn rætast og opnar einkaspæjarastofu undir karlmannsnafni. Þegar hinn alræmdi leikhússtjóri Georg Valentin steypist skyndilega til bana ofan af brúnni út í Katarinalyftuna, áttar Fredrika sig á að maðurinn var myrtur en framdi ekki sjálfsmorð eins og haldið er fram. Hún sér þarna langþráð tækifæri til að sýna hvað í henni býr. Til að takast á við málið þarf hún hjálp vinkvenna sinna en saman mynda þær óvenjulegt fjóreyki: ekkjan Olga, saumakonan Hildur og þjónustustúlkan Edit. Fyrr en varir eru þær flæktar í hættulegar aðstæður þegar þær leita svara í morðmáli þar sem þræðirnir liggja aftur í fortíðina. Dauðs manns kona er opinská og áhrifamikil lýsing á lífinu í Stokkhólmi á þröskuldi nýrrar aldar, þar sem nútímavindar blása um samfélagið. Sagan lýsir tímum þegar konur voru ólögráða og háðar eiginmönnum, læknum og karlkyns ættingjum. Katarina Wennstam lýsir með einstökum hætti vaxandi vináttu fjögurra kvenna úr ólíkum stéttum og þrá þeirra eftir bjartari framtíð.  

19. öld Glæpasögur Norrænar spennusögur Sakamálasögur Spennusögur Svíþjóð Sænskar bókmenntir Sögulegar skáldsögur Þýðingar úr sænsku