Skoða bók
Yesteryear
14:11 klst.
2026
Ég heiti Natalie Heller Mills og ég hef skapað mér hið fullkomna líf. Natalie lifir fullkomnu, hefðbundnu lífi og fylgjendur hennar eru grænir af öfund. Heillandi sveitabærinn á búgarðinum hennar er í vel skipulagðri óreiðu, eiginmaðurinn myndarlegur kúreki og hvert heimabakaða súrdeigsbrauðið öðru girnilegra. Hvað með það þótt barnfóstrur, framleiðendur og nýtísku heimilistæki leynist á bak við tjöldin? Milljónir fylgjenda trúa á hið fullkomna líf hennar. Það sem þeir vita ekki getur ekki skaðað þá. En einn daginn vaknar Natalie í undarlegri og skelfilegri útgáfu af veruleikanum. Heimilið, eiginmaðurinn, börnin allt er kunnuglegt en samt ekki eins og það á að vera. Er þetta hrekkur? Raunveruleikaþáttur? Prófraun frá Guði? Natalie veit aðeins tvennt með vissu: Þetta er ekki fullkomna lífið hennar og hún verður að komast undan sama hvað það kostar. YESTERYEAR er kolsvört kómedía sem tekst á við hefðir, frægð, trú og það hvernig kvenleikinn hefur verið mótaður og sviðsettur í gegnum tíðina. CARO CLAIRE BURKE sló samstundis í gegn þegar Yesteryear kom út vorið 2026. Þessi fyrsta skáldsaga hennar varð metsölubók á svipstundu og hefur selst í milljónum eintaka um allan heim.